góðir hlutir gerast hægt
08.11.2006 20:04:32 / fakja

Smá sveifla í vitlausa átt...

Það voru 400 gr upp eftir vetrarfríið í bústaðnum. Látum það bara vera. Ég er greinilega ekki búin að læra hvernig á að bregðast við fríum og breyttum aðstæðum.  Það er voða oft eitthvað sem truflar mataræðið og svo kemur ein og ein 100 % vika þar sem allt gott er að gerast .  Ég held bara áfram eins og  áður , það er það eina  í stöðunni .  Ég er sannfærð um að þetta hefst einhvern daginn. Ég bjó til fullan pott af súpu í dag og frysti. Það er nauðsynlegt að eiga eitthvað tilbúið sem fjótlegt er að ná sér í . Ég er komin með leið á grænmetislasagne svo ég þarf að leggja heilann í bleyti til þess að finna eitthvað annað gott sem hægt er að frysta í litlum skömmtum líka. Hef nú ekki mikinn tíma fyrir matargerð en það borgar sig samt finnst mér að reyna að malla eitthvað DDV-vænt. Ég finn ótrúlega mikinn mun á mér eftir þessi kíló sem farin eru núna og vil alls ekki fá þau aftur. Ég rúmast svo miklu betur í fötunum mínum og svo er ég ekki alveg eins búlduleit. So... on we go, stelpur mínar og takk fyrir innlitið til mín , það er svo miklu betra að vera margar saman í baráttunni. J


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 13:56:39 / fakja

Niður um 1,4 og 8 kg síðan í vor samanlagt

Það er svo mikið að gera hjá mér þessa dagana að ég get lítið bloggað eða farið á bloggrúnta. Það koma nú svona tímabil en ég er samt á fullu í DDV-fæðinu. Fór niður um 1,4 kg í vigtuninna í gær. Það var kominn tími til að hlutirnir snérust mér í hag. Ég er að fara í sumarbústað á eftir með liðið mitt sem er í vetrarfríi og veit að ég mun fara á öðruvísi fæði þar sem ég á ekkert tilbúið inn í frysti eða kæli í döllum. Hef undanfarið átt bæði lasagne, súpur og soðið grænmeti í frystinum og tekið út eftir hendinni. Ætla samt að reyna að halda grænmetisskömmtunum inni og ekki fara á bólakaf í sælgætið. Tek með mér Ping ísa , vigtina og litla hakkarann minn. Svo verð ég bara að sjá til hvernig viljastyrkurinn reynist þegar á hólminn er komið. Kannski verður þetta í fyrsta sinn sem ég þyngist ekki í fríi ef ég er verulega bjartsýn. Það væri mjög mikill sigur ef það tækist.

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 19:36:43 / fakja

100 grömm í vitlausa átt..

Fór upp um 100 gr í dag. Var hálf hissa en svo þegar ég fór í gegn um vikuna í huganum þá sá ég að frávikin voru orðin aðeins of mörg þótt lítil væru hvert fyrir sig. Aðeins of mikið afslappelsi i gangi þrátt fyrir góða viku í ræktinni.  Það hlýtur að renna af mér í næstu viku. Það sem ég ætla að gera til þess er að passa betur upp á vatnið. Hafa meiri fjölbreytin í grænmetinu. Gerði þetta fína salat áðan með gulrótum, hvítkáli,epli og sýrðum . Allt í mauk og rjóminn út í og inn í ískáp.  Fékk mér svo kaldan og góðan skammt með matnum á móti rótargrænmetinu sem ég bakaði. Það er rétt sem hún Kristín var að segja í dag að það er huggulegra og betra að hafa fleiri bragðupplifanir í gangi í hverri máltíð. Ég var orðin ansi oft með soðnar rófur og gulrætur . Sem er ágætt út af fyrir sig en ekki dag eftir dag. Síðan ætla ég að hafa líka meiri fjölbreytni í ávöxtunum. Það eru bananar og vínber sem eru uppáhaldið ásamt jarðaberjum en ég ætla að fá mér líka melónur  og fleira sem mér þykir ágætt. Reyna að hafa oftar fisk og svo bara að halda mig alveg innan rammans. Það þíðir minna félagslíf en ég verð bara að fá allavega eina góða viku fyrir vetrarfríið krakkanna en þá ætlum við í sumarbústað  og saman í frí. Ég mun sem sagt skrópa í skólanum sjálf en það verður bara að hafa það.


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 15:59:43 / fakja

Erfitt eftir kvöldmat......

Ég er með svo mikið “ cravings” á kvöldin sérstaklega. Skil ekkert almennilega í þessu. Dagurinn gengur ágætlega en klukkutíma eftir kvöldmat grípur mig hrikaleg löngun í eitthvað gott. Ég borða það sem ég á eftir, t.d. ping-ís og vínber. Venjulega er það alveg nóg en núna þyrfti ég tvöfaldann skammt og meira til róa matargatið mig. Ég verð svo skúffuð út í sjálfa mig þegar ég læt undan og fæ mér kringlu , kelleogs K, sykulaust ópal eða eitthvað kolvetnadót að nasla. Ég held að ég hljóti að fara að byrja á blæðingum og þetta sé einhver fyrirtíðaspenna með matarlöngunar ívafi. Gæti líka bara verið ólag af því að ég hef ekki verið alveg 100% og þá kallar á meira. Ætla að reyna að láta þetta ekki fara í taugarnar á mér og sigrast á þessum kvöldpúkum. Tek einn dag í einu. Fer þá bara snemma að sofa í kvöld. Verð nú samt að koma krökkunum niður fyrstJ


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 20:02:55 / fakja

Það gengur betur...

Það var hárrétt ákvörðun að drífa sig í vigtun og horfast í augu við staðreyndir. Ég var voða fegin á eftir. Það er alveg rétt hjá Sigríði Hjördísi að ég hefði örugglega verið lengur að snúa við blaðinu ef ég hefði dregið vigtunina. Ég hef samt ekki verið alveg.... nógu stabíl. Gestagangur og matarboð setja örlítið strik í reikninginn en ekki jafn stór og um daginn.  Ég er búin að fara 3 dag í röð í ræktina og vona að það vegi eitthvað upp á móti. Takk fyrir kommentin og peppin krúsídúllur nær og fjær.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 19:42:47 / fakja

Úff, úff , upp um 500 gr.

Ég ákvað að fara að ráðum Ragnheiðar og bara drífa mig í vigtun. Hvað ég fílaði mig mikinn lúser. Ég fór upp um 500 gr. og viðurkenndi nátturulega bara djammið og matarsukkið á eftir sem ég er búin að vera í . Ég held að þetta hafi verið best í stöðunni til þess að reyna að snúa við blaðinu. Skrítið hvað það er auðvelt að fara út af sporinu eftir nokkrar alveg ágætar vikur þar á undan. Líklega ástæðan fyrir því að maður er ekki í kjörþyngd nú þegar.

 

 



 Ég er búin að vera nokkuð stabíl það sem af er degi en kvöldið er eftir og oft finnst mér þau erfiðust. Reyni að eiga eftir ávexti en þeir eru búnir í dag svo það er bara eftir af mjólkurskammtinum, fitunni og extranu. Reyni að finna út eitthvað girnilegt úr því. Allavega einn ping með bráðavaktinni.  Jæja dömur, vonandi snýst allt mér í hag í dag og næstu daga.  Það bara verður......


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 20:08:23 / fakja

Með allt niður um mig....

Ég er í vondum fæðumálum núna. Fór á djamm á föstudagskvöldið og ekki nóg með það heldur er ég búin að borða vitlaust síðan þá. Vigtun á morgun og þá verður bara leiðinlegt. Er að spá hvort ég eigi að sleppa úr , það má 2var en finnst í aðra röndina að ég verði bara að fara og horfast í augu við stöðuna á mér. Ég er örugglega ekki sú fyrsta sem fer út af sporinu. Æji, Ég skammast mín bara eitthvað svo mikið. Vonast eftir að fara að finna taktinn.:evil::evil:


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 17:03:45 / fakja

200 gr niður og saumaklúbbar í röðum.

Jæja, sagði snigillinn, þetta mjakast.;);) Fór niður um 200 gr í dag. Það hefur líklegast verið úrið sem ég tók af mér vitandi að ekki væru þeir stórir sigrarnir í dag. Ég hafði í farteskinu þessa vikuna nefnilega 4rar máltíðir sem ekki voru rétt samsettar. Þess á milli hafði ég samt haldið mig við bókstafinn. Þetta voru ekki neinar gígantískar sælkeramáltíðir en samt ekki réttar og líklega er það skýringin á vigtinni. Ég er nú ekki með neinn uppgjafartón því þetta er langhlaup og þó einstaka sprettur sé hægur koma vonandi aðrir betri í framtíðinni. Er samt að fara út að borða í kvöld með saumaklúbbnum en ætla að borða grænmetið áður en ég fer og vera svo á bremsunni á eftir. Ég er í allt of mörgum saumaklúbbum. Þeir eru hvað erfiðastir finnst mér þessa dagana. Verð samt að fá að hitta vinkonur og lifa smá félagslífi. Þetta hlítur að reddast....


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 18:34:36 / fakja

Tölvuvandræði og heilt kíló niður!

Það hefur gengið erfiðlega með að blogga undanfarið.  Talvan mín er alveg á síðustu metrunum.  Ég bæti úr þessu bráðlega. Ég get ekki kommenterað á ykkur átakskonur meðan þetta er svona. Kannski er einhver vírus í gangi. Ég fór niður um heilt kíló síðasta vigtunardag.Fékk límmiða og allt. Mín var voða stollt. Þessi vika er skrautlegri með saumaklúbb og afmæli innanborðs.Er í ágætum málum samt og stefni á 5 kíló næst sem þýðir þá 7,5 síðan í vor. Er í 7 kílóum núna.Þarf að losna við 18 kg í viðbót svo það er mikil vinna framundan. Takk átaksvinkonur fyrir peppin og ég sendi knús á línuna.

» 8 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 17:42:09 / fakja

Ætli maður endi á nærbrókunum og híalínskjól í vigtun?

Já , er maður ekki útsmoginn.Ég hugsa nú ekki að ég endi á naríunum í vigtun þótt erfiðlega gangi á stundum. Þessi helgi hefur verið einfaldari en sú síðasta.  Eintóm heimavinna í skólanum svo lítið hefur farið fyrir djammi og  útstáelsi. Það hlýtur að sýna sig í næstu vigtun. Ég held ég hafi skráð mig í aðeins of marga kúrsa þessa önnina. Líklega verð ég að minnka kröfurnar til sjálfrar mín um námsárangur eitthvað.  Fullkomnunaráráttan er erfið að drattast með og verð ég því meðvitað að lækka standardinn. Það er ekki auðvelt. Það stefnir í barnaafmæli á þriðjudag með heilmiklu húllumhæi en ég baka ekki eins mikið núna og áður.  Ein súkkulaði-kisu kaka og síðan sjá dómínós og snakkfabrikkurnar um restina. Eitthvað verður undan að láta. Móðurhjartað slær hraðar þegar ungarnir eldast..... Fyrsti tugurinn hjá stóru stelpunni minni....Ég hugsa að 17 skvísur á sama aldri haldi upp töluverðu fjöri í partíinu.


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 17:02:14 / fakja

300 niður

Jæja þá er vigtunin afstaðin.  300 gr niður. Fór snemma og var ekki búin að borða hádegismat og passaði mig á að vera ekki í þungum fötum. Kallast þetta ekki að vera desperat. En allavega, allt er betra en ekkert.  Er að reyna að komast í sama 100% gírinn og ég var í .  Er ekki alveg komin þangað.  Er á leiðinni.  Það er svo brjálað að gera hjá mér að ég veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga. Það er samt engin afsökun fyrir lélegu mataræði. Tek hvern dag í einu eins og alkarnir........


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 09:48:53 / fakja

Nú snérist aldeilis við stabílitetið....

Ég skammast mín voðalega að þurfa að segja að ég er búin að fara út af sporinu um helgina.  Ég er búin að vera þvílíkt í félagslífinu .  Fór út að borða og í bíó á fimmtudaginn.  Reyndi sem ég gat að stýra matnum þar og var ekkert ósátt .  Föstudagskvöldið fór svo í rauðvínspartý og laugardagskvöldmaturinn var hamborgari og franskar ( ég veit alveg hrikalegt, allir í tímaleysi)áður en við stungum okkur í leikhúsið hjónakornin. Ég náði þó að snúa við í gær og vona að afleiðingarnar af þessu verði ekki langvarandi og ekki upp á við í kílóum  .  Ég á helst von á því að ég standi í stað og væri sátt við það í bili.  En það er búið að vera rosa gaman.  Ég elska það að vera úti um allar trissur. Námið hefur líka setið eilítið á hakanum og núna verð ég að taka skurk og hreinsa upp eftir mig. Svona er nú lífið fallvalt...... ein með móral  Takk fyrir allan stuðninginn átaksvinkonur, þið eruð ómetanlegar......


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 14:57:26 / fakja

900 gr niður . 3,2 kg á 3 vikum í 100%

´´Eg ætlaði að setja inn nýjan ticker en tölvan mín er alveg ömurleg þessa dagana. Ég held hún sé jafnvel með vírus.  Það gerist allt í tvennum og ég gat ekkert ráðið við hana.

Allavega fóru 900 gr í þessari viku og þá telst mér samanlagt að ég sé búin með 6, 2 í allt síðan í vor.  Vigtin mín er komin í lag og vigtar samt meira en þær hjá DDV.  Það er samt betra en ef það væri á hinn veginn. Ég er ánægð og takk fyrir góð ráð í matar og kaffiboðum átakskonur. Ég er eitthvað svo togin og litlaus í framan, ætli það sé haustið eða mataræðið.  Kannist þið við svonalagað ?


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 15:52:14 / fakja

Kápan og konfektmolinn....

Það er vigtun á morgun hjá mér og spenningurinn magnast.  Ég hef aðeins gefið eftir í vatninu en annars  allt  nokkuð mikið eftir bókinni.  Ég keypti um daginn haustkápu í þrengri kantinum. Satt að segja á ég erfitt með að hneppa en það er svo erfitt að finna kápur sem eru nógu stórar á mig og ekki kellingarlegar svo ég ákvað að kaupa þessa og mjókka í hana. (Þarf nr 20 en það var bara til 18) Það er á réttri leið.  Ég get hneppt tölunum þó það sé ekki flott en brjóstatalan var ekki möguleg fyrir 3 vikum síðan. Ég ætlaði að kaupa kápu í fyrra en fann enga svo núna var orðið algjört möst að hafa eitthvað til að vera í.  Ég þarf nátturulega að geta hneppt auðveldlega þegar veður versnar og vona ég að það sleppi til.

Þetta með konfektmolann sem var nánast settur upp í mig var þannig að konan sem hélt boðið og ég þekki ekki mikið kom með bakka með konfekti að andlitinu á mér þar sem ég sat ásamt fleiri gestum sem ég þekki ekki mikið heldur .  Allir fengu sér mola , sumir 2 og ég varð að taka einn svo ég væri ekki að gera mál úr þessu eða vekja athygli sem ég vildi heldur ekki gera. Mitt mataræði er mitt prívatmál nema ég kjósi að tala um það við einhvern sem er þá líka mitt val.  Mér finnst best að kommunikera við ykkur hinar sem eruð í sömu sporunum. Þannig var sú saga , myrkur , fyrst þú spurðir.

Núna er ég að drekka vatn eins og ég lifandi get svo vigtin verði hagstæð á morgun.  Þangað til , hafiði góðan dag......


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 15:00:00 / fakja

Líst er eftir sveppakæfu-uppskrift...

Allt er í sómanum í mataræðinu. :) Er búin að gera margar fylltar paprikur, bakaðar í ofni með rófustöppu og hvítlauk síðan á síðasta fundi. Super- S benti mér á þessa uppskrift til þess að elda meira grænmetið og ekki bara naga það hrátt. Kristín var að tala um sveppapaté/ kæfu sem væri í uppáhaldi hjá henni en ég man barfa ekki lengur hvernig uppskriftin var.  Kunnið þið uppskrift að góðu sveppapaté?

Lenti í kaffiboði í gær. Það var ekki auðvelt að afþakka allar veitingar svo ég fékk mér smá snifsi af flatköku með hangikjöti og eggja/osta böku.  Síðan var hálfpartinn settur upp í mig konfektmoli og varð ég að láta mig hafa það:$ var búin að geyma brauð og ostaskammtinn úr hádeginu og strikaði út ávexti á móti þessu. Það er ekki gott þegar maður ræður ekki ferðinni alfarið sjálfur.

Ég læt nú ekki slá mig út af laginu með þessu og held ótrauð áfram göngunni í átt að mjónunni sem ég eitt sinn þekkti:P


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6